Hvað er Cowash?

Posted by Sunneva Birgisdóttir on

Hvað er Cowash?

 

 

Krullur.is Bounce Curl Hydra Drench Cleansing Conditioner
Cowash eða hreinsinæring, er notuð í stað sjampós einhverja daga eða alla daga, eftir því hvað hentar hverjum.
 
Það að nota hreinsinæringu í stað sjampós þurrkar ekki upp hárið né hársvörð.
Í stað þarf mögulega að Clarify-a oftar, þ.e.a.s. þrífa hárið af samansöfnuðum efnum og óhreinindum (build-up), með clarifying sjampói. 
Fyrir hverja?
Hreinsinæring hentar síður fínu, þunnu hári.
Ef notuð rétt hentar góð hreinsinæring flest öllu hári 
Rétt notkun:
1. Ekkert sjampó á undan.
2. Bleyta hárið vel í dágóða stund.
3. Sækja lítið magn og nudda í lófum.
4. Renna fingrum í gegnum rótina og dreifa vel. Það að bæta vatni, greiða og "Squish-a" hárið hjálpar.
5. Bættu við hreinsinæringu ef þarf.
6. Nuddaðu hársvörðinn mjög vel með fingrunum eða nuddbursta.
7. Aldrei nota neglur. Krullur is Nuddburstinn er tilvalinn fyrir gervineglur.
8. Skolaðu með fókus á hársvörð. Hreinsaðu hreinsinæringuna úr með því að nudda hársvörðinn eins og áður, með vatni.
9. Val um að nota næringu, djúpnæringu, hármótunarvörur á eftir, eða sleppa.
10. Það að vera með hausinn á hvolfi getur auðveldað við dreifingu og þrif.

Share this post