Gott í startið

Val um vörur sem henta hvað flestum.

 ATH! Verið er að vinna að þessari síðu.

     

 

Hægt er að sleppa skrefi 1 og fara beint í skref 2 ef notaður er Djúphreinsimaski (Detox).

1(/2). Final Wash Sjampó, nokkur skipti með Clarifying sjampói eða Detox Maski (Djúphreinsimaski) 1x.) 

- Final Wash er notað í fyrsta þvotti og eftir notkun sílíkon vara.

2. Clarifying Sjampó eða Detox Maski (Djúphreinsimaski).

- ATH! Nauðsynlegt að hafa inní rútínu þegar Súlfat sjampó eru ekki notuð.

  • Ca. 2-3x í mánuði.
  • Clarifying sjampó losar hárið við uppsafnaðar vörur og óhreinindi. 
  • Djúphreinsimaski gerir það sama nema hann vinnur einnig á klóri, steinefnum o.fl. óæskilegum efnum í hári og hársverði.

3. Daglegt Sjampó

  • Ef freyðir illa skal skola úr og þrífa aftur. Náttúrileg hreinsiefni vinna á óhreinindunum og freyða meira eftir því sem minna er af þeim. 
  • Nuddið vel í lófum.

4. Hárnæring

  • Skoluð úr.
  • Tip: Skoðaðu "Squish to Condish" á Youtube
  • Nuddið vel í lófum.

5. Djúpnæring

Munurinn á Djúpnæringu og Næringu:

  • Djúpnæring notast við lengri tíma, hita og sérstakar formúlur til að komast dýpra inn í hvert hár. Þetta hjálpar hárinu við að nærast vel og halda raka betur og lengur innan í hárþráðunum.

 

  • Auka vatn í hárið hjálpar.
  • Til eru tól til að hjálpa djúpnæringu við að komast betur inn í mikið lokað hár (Low Porosity).
  • Ég mæli með því að nota djúpnæringu oft í byrjun og svo reglulega eftir því hvað hentar fyrir þig og þitt hár.
  • Nuddið vel í lófum.

6. Leave-In Hárnæring

  • Notuð eftir næringu og áður en hármótunarvörur eru notaðar.
  • Ekki skoluð úr.
  • Leave-In næringar veita hárinu auka raka og aukna vernd.
  • Hjálpa varðandi flækjur og flækjumyndun.

7. Hárkrem

  • Hármótunarvara sem gefur lítið til miðlungs hald.
  • Veitir hárinu nátturulegan glans.
  • Temur frizz.
  • Þyngir hár EF notað er of mikið.
  • "Þyngir" hárið á þann hátt að hárið lokkar sig betur saman.
  • CGM krem gefa ekki hár sem er efnakennt viðkomu, fyrir utan ef notað er of mikið.
  • Oftast notað í vel blautt eða rakt hár.
  • Nuddið vel í lófum.
  • Gefur mýkt.

8. Gel / Custard

  • Gefur hald á meðan lokkarnir fá að þorna 
  • Minnkar Frizz með því að halda frizzinu niðri með því að stöku hárin sem poppa upp á meðan hárið þornar og þorni þá frekar við lokkana en að stöku hárin losni frá.

9. Froða

  • Gefur Hald og Volume.
  • Hægt að nota sér eða með kremi og/eða geli.

Liquid error (layout/theme line 148): Could not find asset snippets/mbc-bundles.liquid