Mér hefur ekki dottið í hug að nota hársprey sem mótunarvöru áður en svo sá ég eina mæla með því á instagram, ég er með liði sem leka auðveldlega úr og þurfa mikið hald úr mótunarvörunum sem ég nota. Spreyið er fullkomið því það þyngir ekki niður fíngerða hárið mitt og gefur rosalegt hald. Bara passa sig að nota ekki of mikið í einu. Mæli með.